afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Forseti. Það virðist vera rosalega erfitt að klóra upplýsingar út úr stjórnvöldum. Það eru endalaust margar beiðnir sem fara til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þar sem stjórnvöld eru gerð afturreka með þær ákvarðanir sínar að fela gögn hingað og þangað. Við erum t.d. með Lindarhvolsmálið hjá forseta. En síðan erum við með þetta mál þar sem ráðherra hefur skýrt og greinilega sagt: Nei, ekki afhenda gögnin. Það er ákvörðun sem ráðherra segist bera ábyrgð á sjálfur. Það er ekkert vafamál um einhverja tímafresti eða neitt svoleiðis, ekkert sem hægt er að setja á grátt eða ljósgrátt svæði, ekki einu sinn á dökkgrátt svæði, þetta er bara svart og hvítt. Þetta er rosalega einfalt. Hér er ráðherra að segja: Nei, þingið fær ekki gögn til að sinna löggjafarstörfum sínum. Af öllum hinum málunum, sem eru alvarleg út af fyrir sig, þá ber þetta af.