Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:13]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nú held ég að þingmenn verði að fara að draga andann djúpt og aðeins að einbeita sér að lestrinum af því að það er hvergi tekið fram í þessu minnisblaði að hæstv. ráðherra hafi brotið nokkur lög. Menn þurfa bara að setjast niður og lesa þetta álit sem fjallar á engan hátt um eitt né annað tiltekið mál heldur er bara almenn umfjöllun um lögfræðilegt úrlausnarefni. Það er algerlega fráleitt að fólk sem hefur aðgang að þessu áliti leyfi sér að túlka það á þann máta að ráðherra hafi einhvern veginn gerst sekur um að brjóta lög. Ég held að það sé mikilvægt að fólk setjist niður og hugsi aðeins hvernig það kemur fram í þessu ræðupúlti. Hér er ekki á neinn hátt fjallað um lögbrot eins né neins. Þetta er bara fáránlega furðuleg umræða hér í þingsal.