Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:15]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Bara svo að það sé alveg á hreinu hvert erindi okkar er hingað upp undir þessum dagskrárlið þá er það þannig að þetta mál verður ekki hummað fram af sér. Þetta mál er þannig vaxið að stuðningsfólk ríkisstjórnarflokkanna getur ekki hummað það fram af sér. Það snýst um rétt Alþingis til upplýsinga, ótvíræðan rétt Alþingis og þingmanna til upplýsingar svo að við hér á löggjafarþingi Íslendinga getum sinnt störfum okkar. Það er lögbundinn réttur þingmanna að fá þær upplýsingar sem um er beðið. Það er kjarni málsins og um það snýst þetta afdráttarlausa minnisblað sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bað um og fékk frá skrifstofu Alþingis. Undan þeirri staðreynd verður ekki vikist. Ég bið hv. þingmenn að fjalla um þetta mál hér í samræmi við alvarleika þess máls.