Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:18]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Já, tölum um málin af yfirvegun. Hæstv. dómsmálaráðherra, aðspurður hvort hann telji Útlendingastofnun skylt að afhenda þinginu þær upplýsingar sem þingið bað um samkvæmt 51. gr. þingskapalaga, svaraði: Nei, á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar í febrúar 2022. Þetta er enginn útúrsnúningur, hæstv. fjármálaráðherra. Það sem er útúrsnúningur er ræðan sem hæstv. fjármálaráðherra bar á borð hér áðan, að þetta snúist að einhverju leyti um lög um ríkisborgararétt. Það sem þetta snýst um er 51. gr. þingskapalaga, að dómsmálaráðherra hafi beitt sér gegn því að þingið fái þær upplýsingar sem þingið kallaði eftir samkvæmt þingskapalögum. Dómsmálaráðherra stóð í vegi fyrir því. Hann hefur sagt undirstofnun sína ekki bera skyldu til að afhenda þinginu þær upplýsingar sem það kallaði eftir samkvæmt þingskapalögum. (Forseti hringir.) Nú liggur það klárt og skýrt fyrir, með þessu áliti: Víst ber honum að gera það. (Fjmrh.: Gögnin eru ekki til.) Víst ber honum að gera það. (Forseti hringir.)

(Forseti (BÁ): Ekki tveggja manna tal.)

Ég óska eftir því að hæstv. fjármálaráðherra leyfi mér að eiga orðið og hætti að snúa út úr fyrir okkur öllum hérna. Það var brotið gegn þingskapalögum (Forseti hringir.) og brotamaðurinn er dómsmálaráðherrann sjálfur.