Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Hæstv. fjármálaráðherra vill ræða þetta mál af einhverri yfirvegun og skynsemi en á sama tíma — við þurfum að átta okkur aðeins á því að hérna er komin af stað þessi klassíska afvegaleiðing. Það er til marks um það hversu lélega málsvörn ríkisstjórnin hefur í raun í þessu máli að segja bara að upplýsingarnar hafi ekki verið til og þar af leiðandi sé ekki hægt að láta þingið fá þær. Við vitum öll að það virkar ekki þannig. Þegar við erum með fyrirspurnir hérna úr nefndum og úr þinginu þá þarf að taka saman gögn til þess að svara fyrirspurninni þó að þau séu ekki til á því formi sem fyrirspurnin snýst um. Þetta er svo augljóst og er öllum augljóst, eins augljóst og hægt er að hafa það, og málsvörn fjármálaráðherra er að segja nákvæmlega þetta: Gögnin eru ekki til og þar af leiðandi fær þingið þau ekki. (Forseti hringir.) Það er fáránlegt að það skuli vera boðið upp á svona eiginlega.

Forseti. (Forseti hringir.) Við skulum vinsamlegast gera eitthvað í þessu.