Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég vil kannski byrja á því að gera orð hv. þm. Berglindar Óskar Guðmundsdóttur að mínum og hvetja hæstv. fjármálaráðherra til að draga djúpt andann og einbeita sér að lestrinum, eða hefja lestrinum af því að af orðum hans að dæma þá hefur hann ekki einu sinni litið á þetta minnisblað sem við erum hér með til umræðu. Kannski ég lesi kaflann fyrir hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„Til að Alþingi geti afgreitt umsóknir um ríkisborgararétt með viðunandi hætti þarf það að fá þau gögn sem skipta máli. Fáist þau gögn ekki afhent með þeim hætti sem Alþingi óskar eftir getur það, í ljósi þess að þingið fer með forræði á málaflokknum, beitt 1. mgr. 51. gr. þingskapa til að skylda stjórnvöld til að verða við beiðnum Alþingis innan tiltekins frests.“

Það er alveg rétt hjá hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur að hér stendur ekki: Jón Gunnarsson braut þingskapalög. Hins vegar beindi hann þeim fyrirmælum til undirstofnunar sinnar að verða ekki við þessu. (Forseti hringir.) Alþingi getur skyldað Útlendingastofnun til að afhenda gögn. Jón Gunnarsson sagði: Nei, brjótið lögin fyrir mig. (Forseti hringir.) Það stendur í þessu skjali ef við lesum það með bæði augun opin.