Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:29]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér er klassíska afbökun sannleikans í gangi í boði stjórnarandstöðunnar. (Gripið fram í.)Það er nú bara þannig að nefndin hefur boðist að fá öll þessi gögn óunnin. Hún hefur hafnað því. Ég held að nefndin verði bara að svara því hvers vegna það hefur verið ef henni hefur boðist að fá öll gögnin. Hún hefur fengið allar umsóknirnar þannig að þetta er bara klassísk afbökun. Hérna eru þingmenn að blanda saman framkvæmdinni á lögum um ríkisborgararétt og framkvæmd Alþingis á þessum lögum. Það segir líka í minnisblaðinu og ég hvet þingmenn til að kynna sér það, með leyfi forseta:

„Alþingi hefur ekki almennar yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir með Útlendingastofnun. Breyti Útlendingastofnun framkvæmdinni einhliða hefur Alþingi því ekki þær yfirstjórnunarheimildir gagnvart stofnuninni sem ráðherra hefur.“ — Punktur. Frammíköll í þingsal.] Þetta er bara nákvæmlega … (HVH: Þetta er allt annað.) Bullið sem er að koma frá þér, hv. þingmaður.