Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:30]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Þingið hefur haft þetta mál til umfjöllunar í talsverðan tíma, þ.e. hvort ráðherra geti neitað að afhenda eða komið í veg fyrir að undirstofnun afhendi þinginu gögn sem þingið biður um skv. 51. gr. þingskapalaga. Við skulum bara hafa það alveg á hreinu að þetta snýst um það, 51. gr. þingskapalaga. Alþingi biður um gögn frá stjórnvaldi. Ráðherra sem fer með yfirstjórnunarheimildir gagnvart Útlendingastofnun meinar Útlendingastofnun að afhenda þessi gögn. Þegar hann er spurður á opnum fundi í febrúar í fyrra hvort hann telji Útlendingastofnun skylt að afhenda þessi gögn segir ráðherrann nei. Til þess að réttlæta það heldur ráðherrann því fram að hann telji að 51. gr. eigi ekki við um nákvæmlega þessa beiðni af því að hann hefur einhverjar skoðanir á þessari beiðni frá þinginu. Það er nákvæmlega þessi réttlæting dómsmálaráðherrans sem var undir í þessu minnisblaði. Er hægt að segja nei af því að ráðherranum finnst að eitthvað annað eigi að gilda um hann og þessa gagnaöflun heldur en allar aðrar gagnaaflanir sem þingið fer í? (Forseti hringir.) Svarið er nei. Þess vegna var brotið gegn 51. gr. þingskapalaga. (Forseti hringir.) Þess vegna var dómsmálaráðherra Íslands brotlegur gagnvart þingræðinu á Íslandi.