Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:33]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir að ekki komi fram í minnisblaðinu að ráðherra hafi brotið lög. Minnisblaðið segir að það sé brot á lögum um þingsköp Alþingis að neita Alþingi um þau gögn sem farið var fram á. Ráðherra neitaði Alþingi um þau gögn sem farið var fram á. Skýrara verður það ekki. Það er hins vegar svo að eina batteríið sem er bært til þess að skera úr um það hvort ráðherra hafi gerst brotlegur við lög í embættisfærslum sínum er landsdómur.

Ég vil fá að taka undir með hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur. Þetta mál nær langt út fyrir veitingu ríkisborgararéttar. Þetta varðar heimildir og rétt Alþingis til að krefjast gagna frá stjórnvöldum til að Alþingi geti sinnt sínu hlutverki. Ég bið hv. þingmenn meiri hlutans að líta út fyrir þá pólitísku hagsmuni sem í húfi eru og standa með Alþingi í þessu máli, standa vörð um hlutverk og virðingu Alþingis og bregðast við þessari stöðu út frá því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)