afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Virðulegur forseti. Að mörgu er að hyggja þegar kemur að því að Alþingi taki svo veigamiklar ákvarðanir þegar kemur að veitingu ríkisborgararéttar. Þróunin í þessum málum hefur verið með þeim hætti á undanförnum árum að þeim umsóknum sem töldust frekar til undantekninga og komu til ráðstöfunar á Alþingi um íslenskan ríkisborgararétt fór mjög fjölgandi, það mikið að það var farið að hafa mikil áhrif á almenna afgreiðslu þessara mála hjá stofnuninni. Þegar sú staða var komin upp þá treysti ég mér ekki til að biðja stofnunina að ýta þessu fram fyrir í röðinni. Um það snýst þetta. Það stóð aldrei til annað en að afgreiða málin en bara í þeirri röð sem þau berast stofnuninni.
Hitt er svo hvernig staðið hefur verið að ríkisborgararéttarveitingu hér á Alþingi. Það held ég að sé tilefni til að skoða, virðulegur forseti. Það má líka skoða þar, til að mynda í nefndinni sem um þetta fjallaði, hver séu möguleg tengsl fólks við það fólk (Forseti hringir.) sem hefur verið veittur ríkisborgararéttur. Er mögulegt að einhverjir hafi komið að borðinu áður (Forseti hringir.) með atvinnu eða vinnu við að sinna þeim hælisleitendum sem voru að fá veitingu á ríkisborgararétti? (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Hefur mönnum borist einhver sérstakur þakklætisvottur fyrir að hafa veitt ríkisborgararétt? (Forseti hringir.) Þetta eru kannski atriði sem væri ástæða til að fá til skoðunar hjá nefndinni og fá svör við því hvort einhver orðrómur um slíkt eigi við rök að styðjast.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður í umræðum um fundarstjórn forseta og takmarkast við eina mínútu en ekki meira.)