afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Virðulegur forseti. Ég hafði ekki ætlað að standa hér upp og tjá mig undir þessari orðræðu en þegar slík orð eru látin falla sem hæstv. dómsmálaráðherra lét falla hér þá getur maður ekki á sér setið. Það er verið að saka ja, m.a. mig um að það sé verið að bera á okkur mútur fyrir að veita fólki ríkisborgararétt. Hvað er í gangi hérna? Ég lærði í barnaskóla, kannski fyrr, um eitthvað sem hét þrískipting valds, en það er eins og ráðherrar í ríkisstjórn Íslands haldi að þeir geti bara gleypt þetta allt saman og svo þegar þeir mæta einhverri mótspyrnu hér þá ætla þeir að fara að saka okkur um einhverjar mútur. Hvað er í gangi?