Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (ber af sér sakir):

Virðulegur forseti. Ég vil bera af mér sakir vegna ásakana hæstv. dómsmálaráðherra. Ég tel að þetta sé bara einfaldlega rangt og út í loftið. Ég vil minna á að framkoma hæstv. dómsmálaráðherra hefur þyngt vinnuna í nefndinni alveg ótrúlega mikið, að þurfa að vera að standa í þessu stappi fund eftir fund um að fá ekki gögn sem við eigum lögum samkvæmt rétt á að fá, samkvæmt 1. mgr. 51. gr. laga um þingsköp. Um það snýst málið. Mig langar að lesa lok þessarar greinar, með leyfi forseta:

„Því aðeins er heimilt að takmarka aðgang nefndar að gögnum að hagsmunir hennar af því að kynna sér efni þeirra eigi að víkja fyrir mun ríkari opinberum hagsmunum eða einkahagsmunum.“

Ég veit að það er vilji til þess að einfalda kerfið, að veita bara ríkisborgararétt með einum hætti, ekki með stjórnsýsluákvörðun Útlendingastofnunar og líka með lögum frá Alþingi. Það er önnur umræða. Ég vona að ef það verður gert þá verði það gert með lögum frá Alþingi eins og í Danmörku, (Forseti hringir.) en að nota þessa aðferð sem hér er notuð til að eyðileggja núverandi kerfi er ekki rétt.