afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Virðulegi forseti. Nú er það auðvitað þannig að samkvæmt siðareglum Alþingis er þingmönnum óheimilt að kasta rýrð á Alþingi og starfsemi þess og ég held ég hafi aldrei séð nokkurn hæstv. ráðherra kasta jafn mikilli rýrð á Alþingi og hæstv. ráðherra Jón Gunnarsson gerði hér áðan þar sem hann kom fram með mjög ógeðfelldar aðdróttanir í raun um refsivert athæfi. Þar var hann ekki bara að vega að þingmönnum og þeim sem standa í þessu vandasama ferli sem veiting ríkisborgararéttar er heldur líka óbeint að öllu því ágæta fólki sem hefur einmitt hlotið ríkisborgararétt eftir það ferli sem hefur farið fram hér á Alþingi. Ég held að það færi vel á því að hæstv. dómsmálaráðherra bæðist afsökunar á þessum orðum sínum og gerði það jafnvel bara að sínum svanasöng í embætti dómsmálaráðherra. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)