Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[16:30]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar. Mér fannst ég heyra það á orðum hans í ræðunni að það væri gert ráð fyrir að þetta myndi í heildina, uppreiknað, kosta einhverja 6 milljarða. En ég náði því ekki alveg, á þetta ekki að fara inn í fjármálaáætlun sem á að kynna á morgun? Hann má kannski ekki fara að kjafta einhverju eða þjófstarta af því að fjármálaráðherra ætlar að kynna verkefnið á morgun. En mig langar að minnast á að 2020 var samþykkt tillaga Viðreisnar um að sálfræðiþjónusta yrði hluti af sjúkratryggingakerfinu. Sú tillaga hefur aldrei náð fram að ganga. Hér er verið að semja lög, alls konar lög, NPA-samninga og alls konar, og svo er þetta bara sett í einhvern lítinn bauk, síðan er úthlutað úr bauknum og svo þegar það er búið í bauknum mega hinir bara éta það sem úti frýs. Maður veltir því fyrir sér: Eru þetta bara orð á blaði eða ætlum við að gera alvöru úr þessu og reyna að ná utan um þetta?