aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Forseti. Við fórum einmitt um daginn og heilsuðum upp á deildina við Hringbraut og þau sýndu okkur dauða tréð í garðinum. Mjög lýsandi, því miður, fyrir þær aðstæður sem þar eru þrátt fyrir gríðarlega öflugt starf. Því er hamlað af því að sólin skín ekki á það. Það nær samt að skríða upp einhverja millimetra á hverju ári, framþróunin er ekki meiri en það, væri meiri ef sólin myndi ná að skína á þennan litla blett sem þetta tré er á. Ég velti fyrir mér einmitt líka, af því að við erum með þessa aðgerðaáætlun og ráðherra talaði um að kostnaðarmatið væri gróflegt, það væri mjög ónákvæmt: Af hverju er það ekki samt sett með, með einstaka aðgerðum til þess að umsagnaraðilar geti nálgast það og sagt: Þetta er allt of lágt metið eða allt of hátt metið, eða hvernig sem það er, út frá þeirra sérþekkingu? Ef við ætlum í alvörunni að nýta umsagnarferlið á einhvern hátt ætti kostnaðarmatið tvímælalaust að vera aðgengilegt fyrir þá aðila og eins og ráðherra segir þá er það til. Fær nefndin það þá ekki og getur þá jafnvel farið eitthvað lengra með það? Það er óheppilegt að það sé ekki hluti af þessu skjali, það er ekki eins opinbert og þeir aðilar sem koma til með að lesa þetta sjá það ekki beint eða aðgengilega. Spurning hvernig er hægt að leysa það.