Störf þingsins.
Herra forseti. Þingflokkur Viðreisnar er með í því að flytja tillögu um vantraust á hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson. Til þessa úrræðis er bara gripið þegar mikið liggur við og að okkar mati þá blasir það tilefni við okkur núna því að ráðherrann braut ekki bara lög, lögbrotið er atlaga að þingræðinu í landinu.
Hvers vegna er það? Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, öll nefndin, ekki bara stjórnarandstaðan, óskaði ítrekað eftir gögnum frá Útlendingastofnun til að geta sett lög sem veita fólki ríkisborgararétt. Samkvæmt lögum þarf nefndin þessi gögn til að geta sinnt þessu hlutverki sínu. Hæstv. dómsmálaráðherra greindi frá því hér í ræðustól að hann hefði gefið þá fyrirskipun til Útlendingastofnunar að afhenda ekki gögnin þegar þingið bað um þrátt fyrir að skýr lagaskylda sé í þingskapalögum um að stjórnvaldi beri að afhenda þinginu gögn innan sjö daga frá því að beðið er um þau.
Skrifstofa Alþingis hefur staðfest í lögfræðiáliti að þetta er lögbrot. Þetta lögfræðiálit frá skrifstofu Alþingis er algjörlega afdráttarlaust. Ráðherrann braut lög sem ætlað er að tryggja að þingið ráði ferðinni í störfum sínum en ekki framkvæmdarvaldið. Þetta er algjört grundvallaratriði. Ráðherra sem kemur í veg fyrir að Alþingi geti rækt skyldur sínar og sett lög í landinu getur ekki setið í skjóli þessa sama Alþingis. Ráðherra getur ekki sagt: Ég er ósammála því hvernig þingið vinnur. Ég ætla að láta þingið vinna öðruvísi. Ef ráðherra er ósáttur við einhver lög þá þarf hann að breyta þeim, ekki brjóta. Hann þarf að breyta lögum en ekki brjóta þau. (Gripið fram í: Hey heyr) Nú þurfa þingmenn allir, sama hvar þeir í flokki eru, sama hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, að standa vörð um þingræðið í landinu. Ráðherra getur ekki valið eftir hvaða lögum hann ætlar að fara. Hann getur ekki skammtað Alþingi upplýsingar af eigin geðþótta. Ráðherra á aldrei að hindra Alþingi í störfum sínum. Ráðherra má aldrei hindra Alþingi í störfum sínum. Ráðherra sem það gerir verður að víkja.