Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 90. fundur,  29. mars 2023.

Störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að taka undir hvert orð sem hv. þm. Jódís Skúladóttir fór með hér á undan. Líkt og ég kom inn á í gær minna náttúruöflin enn og aftur á mátt sinn og staðfesta að við þurfum alltaf að vera á vaktinni í sambúð við íslenska náttúru. Ómetanlegt er að fylgjast með samstöðu og samvinnu íbúa og viðbragðsaðila á svona dögum. Þau takast á við verkefnin sem birtast af miklu æðruleysi og dugnaði.

Samstaðan áorkar miklu á meðan hamfarir ganga yfir en það má aldrei gleymast að áfram þarf samtal og samvinnu við úrvinnslu afleiðinga, bæði þeirra sýnilegu og þeirra andlegu. Mér fannst því gott að sjá tilkynningu hjá Austurfrétt um að á Austurlandi starfar samráðshópur um áfallahjálp. Að hópnum standa Heilbrigðisstofnun Austurlands, þjóðkirkjan, Rauði krossinn og félagsþjónustan í Fjarðabyggð og Múlaþingi. Samráðinu er ætlað að tryggja aðgengi að sálrænum stuðningi á tímum eins og þessum þar sem snjóflóð falla en viðvarandi hætta er á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Fólk víðar á Austurlandi tekst á við fannfergið og fyrri áföll ýfast upp um land allt.

Gefið hefur verið út fræðsluefni sem er á netinu. Þar er m.a. hugað að hópi innflytjenda enda mikilvægt að huga sérstaklega að öllum þeim íbúum sem eru nýlega fluttir á svæðið, eru fjarri stórfjölskyldum og þekkja jafnvel fáa í samfélaginu. Aðgangur að fagfólki er nauðsynlegur en gleymum samt aldrei mikilvægi samveru, samtala og samskipta í fjölskyldum og samfélögum. Munum líka að álagið birtist á mismunandi hátt eftir byggðarlögum og ekki er hægt að gera ráð fyrir að sömu viðbrögðin henti öllum.

Virðulegi forseti. Að lokum vil ég hrósa svæðismiðlinum Austurfrétt sem hefur staðið sig með afbrigðum vel í fréttaflutningi þegar mest á reynir.