Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 90. fundur,  29. mars 2023.

Innheimtustofnun sveitarfélaga.

896. mál
[17:15]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguræðuna. Ég sit ekki í þeirri nefnd sem fjallar um þetta mál, en það er svo að þingmönnum barst póstur fyrir stuttu sem ég ætla að fá að lesa upp, með leyfi forseta:

„Samband íslenskra sveitarfélaga gerir alvarlega athugasemd við að í frumvarpi til laga um Innheimtustofnun sveitarfélaga kemur ekkert fram um ágreining um mat á kostnaðaráhrifum frumvarpsins. Telur sambandið ljóst að hér sé ágalli á frumvarpinu sem er í algjöru ósamræmi við 129. gr. sveitarstjórnarlaga, þar sem segir:

„Mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög samkvæmt þessari grein skal liggja fyrir áður en frumvarp er afgreitt úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi eða áformuð stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar aðgerðir af hálfu stjórnvalda eru endanlega ákveðnar.

Verði ágreiningur um niðurstöðu kostnaðarmats á lagafrumvarpi skal gerð sérstök grein fyrir því í kostnaðarumsögn sem skal fylgja frumvarpi þegar það er lagt fyrir Alþingi. Verði ágreiningur um niðurstöðu kostnaðarmats tillögu að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu stjórnvalda ríkisins skal niðurstaða um það koma fram í endanlegu kostnaðarmati þeirrar ákvörðunar, sbr. 3. mgr.“

Mikilvægt er að alþingismenn verði upplýstir um þær athugasemdir sem sambandið gerir við málið. Jafnframt er mikilvægt að tekið verði til skoðunar verklag við framlagningu frumvarpa þannig að tryggt verði að lögbundnu ferli sé fylgt varðandi mat á áhrifum frumvarpa.“

Í ljósi þessara skilaboða langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki sé gerð grein fyrir þessum ágreiningi við framlagningu málsins fyrir þingi og niðurstöðunni úr þeim ágreiningi.