154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.

[11:24]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu sem hefur marga mismunandi anga. Mig langar fyrst að tala um að það er mjög mikilvægt að spá í hjúkrunarrými fyrir einstaklinga með fíknivanda og fjölþættan vanda en heilbrigðisráðherra hefur áður boðað að opnað yrði úrræði fyrir þessa einstaklinga. Mig langar bara að ræða hversu mikilvægt það er að við tökum vel utan um þessa einstaklinga og veitum þeim þá þjónustu sem þau eiga skilið. En ekki bara það, heldur vil ég líka leggja áherslu á að ef það á að opna sérhæft hjúkrunarrými og annað fyrir þennan viðkvæma hóp, þ.e. fólk sem er með fíknivanda og fleira, þá fáum við þessa einstaklinga með okkur í lið varðandi hvernig þetta á að vera útfært og hvernig þetta á allt að vera. Það er svo oft sem eitthvað er búið til og síðan kemur í ljós að það er eins og nauðungarvistun eða annað. Við viljum alls ekki að fólk, eldra fólk sem er með fíknivanda eða fötlun eða geðvanda, upplifi sig nauðungarvistað í hjúkrunarrými á Íslandi, fyrir utan það að mér finnst að það ætti að vera nauðungarlaust Ísland, en það er önnur og stærri umræða. En mér finnst bara mjög mikilvægt, út af því að við erum að tala um þetta nýja hjúkrunarrými, að við fáum notendur, sem er fólkið sem mun vera þarna, til að hjálpa við að þróa ný úrræði og nýjar stofnanir sem eru innan ríkisins.

Ég vil líka minnast á það hérna að það er skortur á nýjum hjúkrunarrýmum og það er ekki alltaf sem heimahjúkrun hentar. En við þurfum að passa upp á það og ég tek undir með Guðmundi Inga um að það sé ekki nauðung í gangi í hjúkrunarrýmum á Íslandi.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ávarpa ber þingmenn með fullu nafni eða kjördæmisnúmeri, eins og sagt er.)