Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.
Virðulegi forseti. Það rifjaðist upp fyrir mér saga sem kona sagði mér nýlega af stöðu mömmu sinnar sem kemst ekki inn á hjúkrunarheimili þrátt fyrir að þurfa þess nauðsynlega. Í staðinn er hún lögð inn á Landspítala og er send heim um leið og færi gefst. Þetta gerist aftur og aftur. Auðvitað framkallar þetta kvíða og vanlíðan hjá móðurinni á sama tíma og dóttirin er úrvinda af þreytu, sjálf í fullri vinnu og með börn. Það er dóttirin sem veitir mömmu sinni þá aðstoð sem heilbrigðiskerfið gerir ekki. Það ótrúlega við þessa vondu stöðu er að þetta kostar ríkið meira en dvöl á hjúkrunarheimili. Það er allt rangt við þessa stöðu. Saga þessara mæðgna er spegill á stöðu heilbrigðiskerfisins. Vandinn í hjúkrunarmálum aldraðra er orðinn að bráðavanda alls heilbrigðiskerfisins. Inni á sjúkrastofnunum liggja í dag 800 aldraðir sem þurfa á heimahjúkrun að halda eða þjónustu á hjúkrunarheimili. Nýjum Landspítala er ekki ætlað að verða dýrasta hjúkrunarheimili landsins. Veruleiki fólksins í landinu er að það greiðir háa skatta en fær ekki þjónustu í samræmi við það. Við erum í efstu sætum varðandi skattbyrði en stöndumst ekki samanburð um fjárfestingu stjórnvalda í heilbrigðisþjónustu.
Viðreisn vill standast norrænan samanburð um sterkt opinbert heilbrigðiskerfi. Hér eigum við að horfa á tækifærin en ekki bara tala um erfiða stöðu. Það þarf að marka stefnu til lengri tíma litið, lengur en bara næstu þrjú, fjögur ár. Tillaga Viðreisnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma er að gera samninga við þjónustuaðila og fjármagna þannig uppbyggingu hjúkrunarheimilanna og ríkið kaupi þá með lengri samningum þjónustu fyrir eldri borgarana. Þetta myndi tryggja fleiri hjúkrunarrými og betri þjónustu og minnka álag á Landspítala. Okkar elsta kynslóð á betra skilið. Við verðum að standa að þessu verkefni af metnaði.