154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Halldóra Mogensen verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Orra Páli Jóhannssyni um að hann muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Í gær tóku því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, Lenya Rún Taha Karim, og 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður, Brynhildur Björnsdóttir.

Lenya Rún Taha Karim hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.