154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

mannabreytingar í alþjóðanefndum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokkum Miðflokksins og Samfylkingar um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins í stað Kristrúnar Frostadóttur og Bergþór Ólason verði varamaður í sömu nefnd í stað Loga Einarssonar. Þá taki Þórunn Sveinbjarnardóttir sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins í stað Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Dagbjört Hákonardóttir verður varamaður í sömu nefnd í stað Bergþórs Ólasonar.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.