154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

kosningalög.

6. mál
[17:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, þetta er nefnilega alveg rosalega áhugaverð spurning og svar sem ég hef velt fyrir mér nokkrum sinnum á undanförnum árum. Þrátt fyrir núverandi stöðu þar sem landsbyggðin er með aukið vægi og í rauninni þar sem almennt séð raða landsbyggðarþingmenn sér í ákveðnar nefndir frekar en í aðrar, eins og fjárlaganefnd og jafnvel umhverfis- og samgöngunefnd o.s.frv., þar sem meiri hluti þingmanna er frá landsbyggðinni — nú er ég að draga þetta svona aðeins út úr hausnum en ég held að þessi tölfræði sé nokkuð nákvæm — þá er staðan samt svona hjá landsbyggðinni, miðað við samgönguáætlunina, hvernig hún er aldrei uppfyllt og kláruð, rýrð að verðgildi og þess háttar. Ég sé ekki að árangurinn sé endilega að nást með núverandi fyrirkomulagi þrátt fyrir þessa áherslu á landsbyggðina, sem er dálítið áhugavert þegar allt kemur til alls. Ég held að það væri tvímælalaust góð byrjun að hafa sanngjarnt atkvæðavægi milli landshluta og flokka, í rauninni einmitt til að búa ekki til til að byrja með bara lýðræðislega gjá á milli þéttbýlis og dreifbýlis, því að ég hef ekki orðið var við það að neinn þingmaður skilji ekki hagsmuni landsbyggðarinnar og þyki ekki vænt um hennar hag, hvort sem viðkomandi þingmaður er úr dreifbýli eða þéttbýli.