154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

kosningalög.

6. mál
[17:54]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart að ég sé að taka til máls undir þessum dagskrárlið miðað við reynsluna af kosningum og jöfnunarsætum. Mig langaði bara að byrja á því að segja að ég tek auðvitað heils hugar undir þetta frumvarp og það gleður mig rosalega mikið að ég hafi verið inni á þingi þegar það var lagt fram aftur þannig að ég fæ að vera í textanum sem flutningsaðili. Mig langaði líka að víkja aðeins að markmiði og tilgangi lagasetningarinnar og skýra aðeins vilja löggjafans, sem ég býst við að sé vilji löggjafans miðað við það sem hefur komið fram í máli hv. flutningsmanns þessa frumvarps. Til að byrja með er það hornsteinn lýðræðis að kjósendur geti treyst því að atkvæði þeirra skili sér á réttan stað og að kjörnir fulltrúar sem hér sitja séu rétt kjörnir og þá er það svolítið skammarlegt að Alþingi hafi ekkert gert til að endurvekja traust almennings á kosningakerfinu eftir síðustu kosningar árið 2021. En fyrirkomulag núverandi kosningakerfis er ekki til þess fallið að auka traust almennings í garð Alþingis og atkvæðadreifingar.

En ég held að þetta frumvarp sé mikil bót á núverandi kosningakerfi og kemur á fót aðeins jafnara fyrirkomulagi hvað varðar dreifingu þingsæta en þó er mikil vinna fram undan við að bæta kosningakerfið og það er margt sem þarf að laga, t.d. er það að þingmenn staðfesti sitt eigið kjör samkvæmt stjórnarskrá eitthvað sem ég geri alvarlega athugasemd við og mætti gjarnan breyta. En ég tel að ef við byrjum hér, byrjum á því að lögfesta þær breytingar sem eru lagðar til í þessu frumvarpi, þá séum við strax komin á aðeins betri stað en við vorum á í síðustu kosningum. Það var margt sem kom fram í máli hv. þm. Björns Levís — Birni Levís? (Gripið fram í.) Gunnarssonar, afsakið, frú forseti, sem ég get tekið undir og hef samúð með og það sama með hv. þm. Sigmar Guðmundsson — syni? Fyrirgefðu frú forseti, ég er búin að vera svolítið mikið í rússneskum bókmenntum undanfarið þannig að þetta er allt farið að blandast saman, svo tala ég líka þrjú tungumál heima þannig að þetta er úti um allt. En mig langaði bara að hafa þetta stutt og laggott. Mér fannst mér bera smá skylda til að koma hingað upp í pontu og taka bara innilega undir með þessu frumvarpi sem ég er vissulega flutningsaðili á.

En í ljósi þeirrar stöðu sem blasti við sumum þingmönnum og varaþingmönnum — og eftir atvikum ekki þingmönnum lengur — eftir síðustu kosningar þá tel ég það vera mjög ljóst að það þarf að ráðast í umfangsmiklar kerfislægar breytingar á núverandi kosningakerfi en ég sé þessa hæstv. ríkisstjórn ekki vera að grípa til neinna aðgerða þegar kemur að breytingum á kosningalögum. Jú, það voru sett ný lög á fót árið 2021 en ég sé engar grundvallarbreytingar í þeim lögum. Eins væri ég til í að fá kosningaeftirlit fyrir næstu kosningar sem fer að styttast í, tvö ár eru ekki langur tími, það er eitthvað til að byrja að huga að núna. Það fer auðvitað líka eftir því hvort það verði vorkosningar eða haustkosningar. Ef frumvarp þetta verður að lögum, þá mun ég alla vega fagna nýju fyrirkomulagi af því að ég tel að meira að segja lítil breyting sé betri heldur en þau lög sem við erum með núna í gildi og þessi óvissa sem ríkir alltaf á kosningakvöldinu því að ég ætla alveg að viðurkenna að ég skil ekki alveg núverandi fyrirkomulag virkar, ég skil hvernig jöfnunarsæti virka og hvernig uppbótarþingmenn virka en það er líka út af því að ég lenti í kerfinu sjálf. En ég skil alveg að hinn almenni kjósandi skilji ekki nákvæmlega hvernig atkvæðunum er dreift yfir kjördæmin og ég held að okkur beri skylda sem löggjafi til að koma á fót einhverju kerfi sem er auðskiljanlegt, bara alveg eins og lög eiga að vera, lög eiga að vera auðskiljanleg þannig að venjuleg manneskja geti lesið þau og skilið þau. Það sama ætti að gilda um kosningakerfið hér á landi. En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og ég vona innilega að þetta frumvarp verði að lögum.