154. löggjafarþing — 14. fundur,  12. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[10:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég tek undir orð hv. þingmanns hérna áðan. En mig langar til að spyrja hæstv. forseta, af því að í þingsköpum er gert ráð fyrir því að það séu að lágmarki þrír ráðherrar í óundirbúnum fyrirspurnum en ég sé bara tvo. Þessi sem situr hérna vinstra megin við mig er hættur, þannig að ég veit ekki hvað forseti er eiginlega að gera með þessu.