154. löggjafarþing — 20. fundur,  25. okt. 2023.

grunnskólar.

47. mál
[19:08]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir svarið sem var að mörgu leyti áhugavert vegna þess að hann talaði um að það vantaði leiðbeiningar fyrir kennarana í þessum málum sem er nákvæmlega það sem viðmiðin í aðalnámskrá gera út á. Það sem börn þurfa að hafa lært. Með aðalnámskránni var kennurum veitt aukið frelsi, frábært. Bekkir eru mismunandi, það þarf að gera þetta á mismunandi hátt. En hæfniviðmiðin eru samt þeir punktar sem kennararnir þurfa að fylgja og þar kemur það fram að kristni er nefnd í mjög mörgum viðmiðunum sem viðkoma trúarbrögðum. Nú er það þannig að ég er sjálf nýbúin að fara í gegnum þetta nám, kennaranámið, þar sem ég lagði sjálf áherslu á trúarbragðafræði og samfélagsfræði Þannig að ef kristinfræði væri sérstaklega tekin út fyrir ramma þá erum við að fara gegn þeim viðmiðum sem aðalnámskrá setur almennt vegna þess að kennurum er gefið frelsi en þeir þurfa samt að fylgja þeim viðmiðum sem koma fram.

Ég sé enn þá ekki hvernig þetta mun í rauninni geta tryggt það að kristinfræðin sé tekin enn meira fyrir vegna þess að hæfniviðmiðin tryggja að það sé talað um kristinfræði enda er talað um kristna trú í stjórnarskrá okkar.

Einnig er mjög margt sem kemur fram í greinargerð frumvarpsins sem á við um nær öll trúarbrögð. Trúarbrögð eru náttúrlega mjög mikilvægur partur af öllum samfélögum þannig að það er mjög mikilvægt að þetta sé kennt í öllum skólum. En við erum núna með fjölmenningarsamfélag. Það er talað hér um að þekking á eigin trú sé forsenda til skilnings á trú annarra og um leið til umburðarlyndis. Nú erum við fjölmenningarsamfélag og í sumum bekkjum eru mun fleiri nemendur sem eru ekki kristinnar trúar þannig að það er líka mikilvægt fyrir þau að þekkja sína eigin trú til þess einmitt að hafa betri skilning á kristinni trú með þeim rökum sem þingmaður kemur með í þessu frumvarpi.