154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

tilkynning um dagskrártillögu.

[17:50]
Horfa

Forseti (Ásmundur Friðriksson):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskártillaga og bréf:

„Undirrituð gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að dagskrá næsta fundar verði:

1. Störf þingsins.

2. Tillaga til þingsályktunar um að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu og kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum, 452. mál, frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, fyrri umræða,

ásamt öðrum dagskrármálum sem forseti Alþingis leggur til.

Með þessu gefst þingheimi tækifæri til að standa saman gegn stríðsglæpum sem eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs á tímum þegar fordæmalaus óvissa ríkir um afstöðu ríkisstjórnar Íslands til ástandsins.

Þess er óskað að tillagan verði borin upp til atkvæðagreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir bréfið ritar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.