154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

staðfesting kosningar.

[15:04]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Rögnu Sigurðardóttur sem 2. varaþingmanns á lista Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir einróma með staðfestingu kosningar Rögnu Sigurðardóttur.