154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[14:47]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir andsvarið. Nú vil ég taka það fram að samskipti mín við bæði forystufólk og starfsfólk HS Orku og HS Veitna hafa verið til mikillar fyrirmyndar. Ég heimsótti HS Veitur í gær, fékk þar að hitta starfsfólk og forstjóra. Eins hitti ég forstjóra og starfsfólk HS Orku og það er ekki nokkur vafi á því að þetta fólk hefur verið að leggja sig allt fram á undanförnum dögum og vikum til að gera sem best í þágu íbúa á svæðinu. Það breytir því hins vegar ekki að hér er um gríðarlega mikilvæga innviði að ræða, orkuinnviði, og það er mín eindregna skoðun, og ég tel að þessir atburðir endurspegli það, að það fer langbest á því að slíkir innviðir séu í almannaeigu, hvort sem það er veitukerfið eða orkuframleiðslan. Þetta er risastórt öryggismál þar sem skiptir miklu máli að það séu einmitt aldrei neinir aðrir hagsmunir undir en öryggi íbúa. Það á auðvitað að vera stóra verkefnið. En þar með kasta ég engri rýrð á þetta ágæta starfsfólk og forystufólk.