154. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2024.

eignarréttur og erfð lífeyris.

147. mál
[14:02]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég kem upp núna í þetta sinn til þess að óska landsmönnum öllum og þingheimi og okkur öllum gleðilegra páska. Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá að flytja málin okkar í Flokki fólksins og vera síðust á dagskránni áður en við förum í páskafrí. Kæra þjóð og við öll, starfsfólk, þingmenn: Guð gefi ykkur öllum gleðilega páska.