155. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2024.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:04]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti, kæra þjóð. Hefði ég ekki verið búin að njóta þeirra forréttinda að lesa stefnuræðu forsætisráðherra áður en hann flutti hana hér áðan þá stæði ég ekki hér. Ég lægi sennilega í yfirliði í sætinu mínu. Þvílíkt froðuflóð sem flæðir út um allar koppagrundir, það er með hreinum ólíkindum. Maður getur hreinlega ekki varist brosi. Hér er talað um að kaupmáttur sé hvað mestur. Hér er talað um að kaupmáttur sé jafnvel mun meiri heldur en í löndunum í kringum okkur sem við berum okkur saman við. Hverjum dettur í hug að trúa þessu bulli? Er eitthvað sambærilegt að miða við okurvexti og þann hrylling sem samfélagið okkar er að ganga í gegnum, við verðbólgu sem engin bönd hafa náðst utan um, og bera það saman við önnur lönd sem hafa farsællega kveðið verðbólgudrauginn í kútinn á ótrúlega skömmum tíma? Eitt er víst að enginn af stjórnmálaleiðtogum þeirra þjóða hefur þeytt krónutöluhækkunum og áframhaldandi þrýstingi út í efnahagskerfið með þeim afleiðingum að viðhalda verðbólgunni eins og við þekkjum hana í dag. Jú, hún hoppar niður í 5,8%. Æ, er hún komin aftur upp í 6%? Þessi hæstv. ríkisstjórn veit ekki hvort hún er að koma eða fara. Hún segir t.d. að fasteignalán heimilanna séu bara í fínum málum. Þau hafa líka grætt svo rosalega mikið á öllu þessu ófremdarástandi í efnahagskerfinu, húsnæðið okkar hefur hækkað svo mikið í verði og við erum orðin svo rík að eiga þetta húsnæði að það þýðir ekkert fyrir okkur að kvarta þó að við séum að glíma við smávegis örðugleika. Það er bara allt í lagi, er það ekki?

Staðreyndin er sú að við erum ekki að fara að selja ofan af okkur þakið nema nauðsyn krefur til að innleysa þennan uppsafnaða hagnað, er það? Við étum ekki steinsteypuna, er það? Við skröpum hana ekki með ostahníf niður á diskinn og étum hana, er það? Skiptir það einhverju máli hvers virði fasteignin okkar er ef hún er bara heimilið sem við búum í hverju sinni, bara fjölskyldan, ekki ógeðslega taumlausa græðgin sem ríður röftum eins og við þekkjum í dag, þar sem Arion banki var nú að tilkynna enn eina vaxtahækkunina í morgun, tilkynna vaxtahækkun á verðtryggð fasteignalán, bæði á föstum verðtryggðum fasteignavöxtum og breytilegum; 12–15% hækkun? Þvílík taumlaus ógeðsgræðgi, en við vitum öll að uppskriftin sem þessi hæstv. ríkisstjórn hefur sett í kökuna sína er nákvæmlega að ganga eftir, uppskriftin um þessa taumlausu fjármagnsflutninga frá vinnandi stéttum í landinu, frá fátæku fólki í landinu, litlum, meðalstórum, skuldsettum fyrirtækjum í landinu — taumlaus græðgi sem flytur alla fjármuni þessara aðila beinustu leið í græðgiskjaft bankanna sem eru aldrei með nógu háa vexti. Og hvers vegna hækkuðu þeir aftur vextina? Jú, það er nefnilega aukin ávöxtunarkrafa. Við græðum aldrei nóg.

Ég fyrirlít þau stjórnvöld sem hafa kastað inn handklæðinu og verið að malla hér og drullumalla sjö síðastliðin ár. Þetta er útkoman. Skuldastaða heimilanna hefur farið svo stórkostlega versnandi að Motus var að gefa það út í morgun að 20,1% aukning væri á alvarlegum vanskilum heimilanna. Nei, þá segir þessi hæstv. ríkisstjórn: Heimilin hafa aldrei staðið betur og eiga bara að þakka fyrir hvað þau hafa bólgnað út í öllu þessu brjálæði á fasteignamarkaði. Og hvers vegna skyldi nú framboð fasteigna á markaði vera að aukast? Jú, vegna þess að ungt fólk barðist fyrir og trúði því að hér væri lágvaxtaumhverfi fram undan og var hvatt til að fjárfesta sem aldrei fyrr og koma sér þaki yfir höfuðið. Þessir einstaklingar eru að gefast upp. Þeir eru að selja eignirnar sínar unnvörpum og fara aftur heim til pabba og mömmu, vegna þess að þessi ríkisstjórn er að svipta þá þeim sjálfsögðu réttindum að koma sér þaki yfir höfuðið.

Ítrekað er verið að grobba sig af því hvernig þessi almannatryggingalöggjöf hafi verið tekin í gegn, hvernig eigi nú aldeilis að koma til móts við öryrkjana sem eiga jú að byrja á því frá 1. janúar 2025 til 1. september sama ár að greiða fyrir kjarapakka þessarar ríkisstjórnar; 10,1 milljarður sem átti að setja í almannatryggingakerfið og lyfta undir fátækasta fólkið í landinu. Sá 10,1 milljarður á að fara í það að greiða fyrir kjarapakka ríkisstjórnarinnar. Ég tala hér sem öryrki, fyrrverandi öryrki — auðvitað núverandi öryrki, en þessi er á ofurlaunum, þessi lifir ekki á almannatryggingum, þannig að ég tala af reynslu þegar ég segi: Það er böl að bíða eftir því að fá einhverjar örfáar krónutöluhækkanir í umslagið sitt þegar maður hefur ekki ráð á því að fæða og klæða börnin sín. Í boði þessarar ríkisstjórnar mega öryrkjar áfram bíða eftir réttlætinu. Ekki nóg með það að þetta almannatryggingafrumvarp sem byggir eingöngu á starfsgetumati sé svo illa ígrundað að einstaklingar sem eru að lenda í því að verða metnir til starfsgetu fá hvergi vinnu, heldur hefur þessi ríkisstjórn, þessi félagsmálaráðherra og þetta almannatryggingafrumvarp ekki undirbúið jarðveginn að einu eða neinu leyti. Þessir einstaklingar eru í lausu lofti og það eina sem þeir fá að upplifa þegar búið er að meta þá til starfsgetu er þetta: Já, en elsku vinur minn, þú færð bara 50.000 eða 70.000 kr. minna útborgað. Svo er þessi hæstv. félagsmálaráðherra undrandi á því að Flokkur fólksins, einn flokka á Alþingi, skyldi ekki vera á græna takkanum þegar verið var að koma með þetta almannatryggingafrumvarp hér inn í sumar sem leið. Við erum talsmenn öryrkja og allra þeirra sem höllustum fæti standa í samfélaginu og því fyrr sem kjósendur og fólkið okkar áttar sig á því, því fyrr verða raunverulegar breytingar á stöðu þeirra sem níðst hefur verið á daginn út og inn sjö síðastliðin ár og í of mörg ár þar á undan.

Ef við lítum nú á það sem hæstv. forsætisráðherra nefndi, fjölgun eldra fólks. Þetta er ég búin að heyra síðan ég kom á Alþingi Íslendinga. Við lifum lengur, okkur fjölgar meira og við deyjum seinna. En vitið þið það, kæru landsmenn, að 24 eldri borgarar látast aleinir heima hjá sér á ári hverju og eru búnir að liggja þar mislengi dánir áður en þeir eru fundnir? Vissuð þið það? Það er í boði þessarar ríkisstjórnar eins og allt annað. (Gripið fram í.)

Herra forseti. Ég ætla ekki að halda áfram vegna þess að hér kemur annar ræðumaður á eftir mér sem verður alveg frábær. En kæra þjóð, við lofum alvörustjórnarandstöðu í vetur. Við lögðum inn 71 þingmannamál í gær sem öll lúta að því að bæta hag og bæta kjör allra landsmanna. Við erum talsmenn allra, ekki bara sumra eins og sitjandi ríkisstjórn er.