fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég heyri þetta stef mikið hjá stjórnarliðum að allur minni hlutinn hafi viljað gera meira í Covid. Gagnrýni okkar Viðreisnar fól það í sér að taka stór skref og taka þau strax, draga þau ekki. Hluti af því sem við erum að díla við í dag er að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í heimsfaraldrinum voru svifaseinar og skiluðu sér seint inn í kerfið. En ég er skoðanasystir þingmannsins um tölurnar og að það sé hægt að treysta þeim, hægt að treysta gögnunum. En ábyrgð okkar hér í þessum sal er líka mikil. Þess vegna spurði ég þingmanninn að þessu: Eigum við að vera að ræða með þessum hætti um þennan afkomubata þegar við vitum hvað býr að baki? Þessi afkomubati byggir ekki á neinum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þetta eru óvæntar tekjur, ekki síst í gegnum vaskinn, út af verðbólgu. Þær munu hverfa.
Ég er líka sammála þingmanninum um að það er vel þess virði, ég hef talað fyrir því í nefndinni, skrifað um það greinar og talað um það hér í þessum sal, að taka upp útgjaldareglu. Við áttum fínt samtal um það með fulltrúum OECD í ferð okkar í París þar sem var verið að tala um að setja upp útgjaldareglu sem tæki mið af vexti og það væri þá einhver rammi utan um það. Í einhverjum löndum er það beinlínis þannig að það fer fram atkvæðagreiðsla í upphafi fjárlaga um það hvar þakið er. Þetta eru allt saman punktar sem við getum rætt. En af því að við erum að tala um gögn og við erum að tala um áreiðanleika þeirra þá finnst mér líka skipta máli af hálfu meiri hlutans að hann haldi því til haga hvers eðlis hinn íslenski hagvöxtur er. Ekki bara að hann sé mikill. Hann er mikill í alþjóðlegum samanburði en það er líka sérstakt fyrir íslenskan hagvöxt hvernig hann er síðan þegar við horfum á það hvernig hagvöxtur á mann er. Það er lykilbreyta. Þetta er ástæða þess að almenningur upplifir það ekkert sérstaklega sterkt að hér sé mikill hagvöxtur. Hagvöxturinn byggir að miklu leyti á fólksfjölgun. Það þýðir líka að það eru fleiri munnar að metta, (Forseti hringir.) það eru fleiri íbúðir sem þarf að byggja. Hinn séríslenski hagvöxtur kallar líka á önnur viðbrögð en annars staðar.