fjárlög 2025.
Frú forseti. Hagvöxtur á mann. Við höfum átt góðar umræður um þetta, við hv. þingmaður, í vinnu fjárlaganefndar undanfarin ár. Þegar maður fór að skoða þetta miðað við önnur Norðurlönd og annað þá sást að landsframleiðsla á hverja klukkustund í vinnu hefur vaxið hraðar hjá okkur en á hinum Norðurlöndunum. Þegar menn fóru að skoða gögnin kom út að þetta var ekki eins óhagstætt og það leit út við fyrstu skoðun. Þetta var um 1,3% yfir um átta ára tímabil og ég held að það hafi ekki endilega versnað.
Varðandi það hvernig hagvöxtur verður til á Íslandi þá held ég að það sé rétt að nefna, ég kom aðeins inn á það í ræðu minni áðan, átakið sem ríkisstjórnin fór í fyrir fimm, sex árum og var líka hluti af Covid-aðgerðum, í rannsóknum og þróun. Það er að skila sér með gríðarlega sterkum hætti núna í útflutningstekjum þjóðarinnar og það er það sem kemur m.a. fram í fjármálaáætlun í vor og síðan aftur í þessum fjárlögum, hversu gríðarleg breyting hefur orðið á hlutföllum í atvinnugreinum. Þetta er lykilatriði þegar við erum að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf og er stóri þátturinn í því að styðja við stöðugleika í framtíðinni í litlu hagkerfi þar sem 400.000 manns búa.
Ég verð að segja að mér finnst þetta tal um halla á ríkissjóði í níu ár vera gríðarlega ósanngjarnt ef menn fara í gegnum það sem við höfum verið að eiga við og ég taldi upp í minni ræðu, fimm ár af ótrúlegum áföllum. Fyrir ríkissjóð eru þetta 80 milljarðar kr. nú þegar með Grindavík. Ég man að við vorum með nýja fjármálastefnu út af WOW air 2019, okkur þótti áfallið svo alvarlegt. Ári seinna var áfallið tíu sinnum stærra. En við erum að rétta okkur af á ótrúlega skömmum tíma og erum búin að ná frumjöfnuði og heildarjöfnuðurinn er að koma. Það eru satt að segja ekki mörg ríki í Evrópu eða í hinum vestræna heimi (Forseti hringir.) með þessa stöðu. Það væri áhugavert ef við skoðuðum það í stærra samhengi alls hins vestræna heims.