fjárlög 2025.
Forseti. Mér finnst áhugaverð þessi orðræða sem er farin að skjóta rótum hjá þingmönnum stjórnarflokkanna, að stjórnarandstaðan hafi öll kallað eftir meira, meira, meira í Covid en að nú sé hún að skamma þau því að þau hefðu átt að gera minna, minna, minna. Þetta er dálítið skrýtin söguskýring vegna þess að það var margt gert í Covid og af sumu þurfti að gera meira, af öðru þurfti að gera minna. Svo var ýmislegt sem var ekki gert sem hefði þurft að gera. Það hefði t.d. þurft að gera minna af því að dæla peningum til fólks sem jók þrýsting á eftirspurnarhliðinni á húsnæðismarkaði. Við vöruðum við því hér í sal á þeim tíma. Það var varað við því í umsögnum. Það hefði líka þurft að gera minna af því að dæla peningum til fyrirtækja, þeim til stuðnings án þess að skilyrða það einhverjum eðlilegum kröfum um að þau fyrirtæki mættu ekki taka út óhóflegan arð í framhaldinu. Það var varað við því í sal á þessum tíma. Það er enginn að vera vitur eftir á hér, það var varað við þessu. Síðan hefði þurft að gera meira af því að hlusta á ákall stúdenta um að sá hópur kæmist í skjól atvinnuleysistrygginga. Ég hef ekki tölu á umsögnunum sem bárust frá stúdentaráði þar sem var beðið um þetta sjálfsagða öryggisnet undir grunnframfærslu þess stóra hóps. Á þetta var ekki hlustað þó að það hafi verið bent á það bæði í umsögnum og hér í sal. Svo hefði líka mátt gera ýmsar ágætar nauðsynlegar kerfisbreytingar sem töluðu sérstaklega inn í ástandið þá, eins og að styrkja aðgengi að gjaldfrjálsri geðheilbrigðisþjónustu. Við erum nú aldeilis að sjá hver eftirköstin af Covid-tímabilinu eru fyrir stóra hópa fólks varðandi andlega heilsu. Ég held því að stjórnarliðar í næsta samhristingi mættu ræða það hvort þessi lína (Forseti hringir.) megi ekki bara hætta. Hvort það megi ekki bara fara að tala um ólíka sýn á Covid-aðgerðir í sanngjörnu og eðlilegu sögulegu ljósi.