fjárlög 2025.
Frú forseti. Í fjárlagafrumvarpinu eru kynnt áform um að veiðigjald verði hækkað um 2 milljarða. Ég vil því nota tækifærið hér og spyrja hæstv. matvælaráðherra út í hina hagfræðilegu greiningu sem hefur farið fram í matvælaráðuneytinu á áhrifum þessarar hækkunar, áhrifum á greinina, áhrifum á framleiðslu, fjárfestingargetu, samkeppnishæfni greinarinnar og hvort sú hagfræðilega greining og niðurstaða hennar um hækkun veiðigjaldsins verði ekki örugglega lögð fram við meðferð annars vegar fjárlagafrumvarpsins í haust fyrir fjárlaganefnd og svo með frumvarpinu sem kemur í kjölfarið. Ég vil líka spyrja ráðherrann út í niðurstöðu þessarar hagfræðilegu greiningar sem hefur farið fram um áhrif þessarar hækkunar og hvernig henni ber saman við niðurstöðu í nýlegri skýrslu hjá dr. Ragnari Árnasyni prófessor emeritus og Birgi Þór Runólfssyni dósent, um áhrif hækkunar veiðigjalds á landsframleiðslu og tekjur hins opinbera, og hvort þessar tvær greiningar, niðurstöður þessara ágætu fræðimanna, rími við þá vinnu sem hefur farið fram í matvælaráðuneytinu.