155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:21]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka eftir því hvernig við höfum verið að forgangsraða innan rammans. Nú er vinna innan ráðuneytisins við að skoða hvernig við getum sameinað stofnanir, sem ég hef hug á að gera, m.a. í takt við þá hugmyndafræði að nýta þessa innviði okkar betur. Við erum að fara að kynna nýja bókmenntastefnu. Getum við hagrætt innan bókmenntanna til að styðja samt betur við þær? Við erum til að mynda með hús skáldsins og Miðstöð íslenskra bókmennta — þurfum við ekki meiri sameiningu eða samstarf og samvinnu til að ýta undir það að íslensk verk séu kynnt betur erlendis? Miðstöð íslenskra bókmennta hefur verið að gera góða hluti en hvernig getum við stutt betur við hana? Eins erum við að horfa á ákveðin söfn sem hafa mikla samlegð. Þessi vinna hófst í mars á síðasta ári og ég er að vonast til að geta kynnt hana á næstu mánuðum. Það er eitt.

Eins varðandi Þjóðaróperu, þá má ekki gleyma því að verið er að breyta um fyrirkomulag. Íslenska óperan flyst yfir í Þjóðaróperu sem starfar svo innan veggja Þjóðleikhússins, þannig að í stað þess að vera með markaðsstarf í Íslensku óperunni og í Þjóðleikhúsinu verður ein markaðsdeild og ein fjármálastjórn. Ég held að þetta sé svolítið leiðin fram á við, þ.e. að setja minna í umsýslu en meira í listsköpun og að listafólkið okkar fái vinnu við það sem það hefur lært. Ég kem svo að Ríkisútvarpinu.