fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör og hvet hana áfram til dáða í hagræðingu og forgangsröðun verkefna. Mig langar þá bara að fylgja spurningunni eftir um Ríkisútvarpið, sem hún segist ætla að koma að í síðara svari sínu, hvort það eigi ekki frekar heima á fjárlögum. Hlutverk Ríkisútvarpsins er margþætt og innan ráðuneytisins eru margir málaflokkar sem sinna sama hlutverki og Ríkisútvarpið. Á það ekki að sæta sömu hagræðingu og aðrar stofnanir og eiga sum hlutverk Ríkisútvarpsins ekki betur heima í samkeppnissjóðum eða innan fleiri þátta? Ég held að hægt sé að breyta þessu mikið án þess að vera eitthvað að skipta sér af ritstjórnarhlutverki Ríkisútvarpsins.