155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:25]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Sú löggjöf sem við höfum búið utan um Ríkisútvarpið var ákvörðuð árið 2009. Þá var það metið sem svo að gott væri fyrir Ríkisútvarpið að það væri þessi almenna skattheimta sem fjármála- og efnahagsráðuneytið innheimtir út frá ákveðnum forsendum eins og hv. þingmaður fór yfir. Þetta hefur sína kosti og galla. Kostirnir við núverandi fyrirkomulag er að Ríkisútvarpið er afar sjálfstætt, það er bara þessi fjármögnun. Á móti kemur að þegar verið er að hagræða — auðvitað er verið að hagræða þó að krónutalan sé að hækka, eins og hv. þingmaður benti á — þá er kannski ekki alveg jafnræði á milli þessara stofnana, en í niðursveiflu og fólksfækkun, sem hefur að vísu ekki verið í langan tíma á Íslandi, (Forseti hringir.) lendir Ríkisútvarpið í hagræðingu og Ríkisútvarpið hefur sannarlega verið að hagræða hjá sér.