fjárlög 2025.
Forseti. Mig langar til að beina spurningu til hæstv. ráðherra varðandi nýstofnaðan sjóð til lokafjármögnunar í kvikmyndagerð. Ef ég skil tölur og upplýsingar rétt þá er þessi sjóður ófjármagnaður. Það er verið að skera niður í framlögum til innlendrar kvikmyndagerðar þó að verið sé að auka framlög í endurgreiðslur. Eins og ég skil þetta þá er þetta tiltölulega öfugsnúið þar sem kvikmyndagerðarfólk getur vitanlega ekki sótt um endurgreiðslu ef það hefur ekki fjármagn til að fara af stað í kvikmyndagerð. Það var sérstaklega bent á það, þegar verið var að stofna þessa nýju sjóði á síðasta þingi, sem var mikið fagnaðarefni og er mikið fagnaðarefni, að það þyrfti að tryggja fjármögnun, að það þjónaði ekki hlutverki þessara nýju sjóða að taka peninga úr öðrum kvikmyndasjóðum til að fjármagna þetta. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta sé rétt skilið, hvernig standi á þessu og hvernig hún sjái þetta fyrir sér.