fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Til þess að fjárlögin eða ríkisfjármálin gætu stutt við aðhaldssama peningastefnu var það ljóst í huga ríkisstjórnarinnar að það þyrfti aðhald á sjóðina og það á við um alla sjóði sem eru á málefnasviði 18. Það sem er hins vegar að gerast er tvennt. Í fyrsta lagi mun fjármála- og efnahagsráðherra sækja fram með svokallað menningarframlag sem mun taka gildi 2025 og þeir fjármunir munu renna inn í Kvikmyndasjóð, sem eru nýjar 260 milljónir árið 2026, það er mjög mikilvægt.
Varðandi endurgreiðslurnar þá skil ég mjög vel áhyggjur hv. þingmanns af því að þetta myndi bitna á framleiðslu hjá innlendum aðilum. En þegar við skoðum tölurnar er það þannig að endurgreiðslurnar skiptast til helminga, annars vegar til innlendra aðila og hins vegar til erlendra aðila. Þetta skiptir alla vega mig sem ráðherra mjög miklu máli vegna þess að við viljum auðvitað veg íslenskrar kvikmyndagerðar sem mestan. Einn af áhættuþáttunum, þegar við vorum að hækka endurgreiðslurnar, var að það yrðu ákveðin ruðningsáhrif inn á markaðinn þegar þú ert að fá svona mikla beina erlenda fjárfestingu inn í kvikmyndagerðina. Þess vegna var gott að sjá að skiptingin er með þessum hætti. Varðandi sjónvarpssjóðinn — ég ætla að koma að því í næsta svari. Þetta virkar þannig að Kvikmyndamiðstöðin ákveður innan þessara laga hvernig hægt sé að styðja við viðkomandi verkefni og svo (Forseti hringir.) geta fleiri aðilar komið að því að styðja verkefnið, þ.e. erlend fjármögnun.