155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:12]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Í fyrri lotu ræddum við hæstv. ráðherra um þau verkfæri sem eru innan ráðuneytisins til að draga úr loftslagsáhrifum samfélagsins okkar. Þau verkfæri eru ófá innan innviðaráðuneytisins en þar eru líka þau verkfæri sem þarf að grípa til til að taka á afleiðingum þeirra loftslagsbreytinga sem verða, sama hvaða aðgerða við grípum til á hinum endanum. Mig langar að spyrja út í eitt þeirra, sjóvarnir. Það sem er að gerast allt í kringum landið er að sjórinn er að brjóta af ströndum af auknum krafti. Vegagerðin heldur utan um málaflokk sjóvarna og mig langar að velta upp þeirri spurningu hvort ekki þurfi að gera dálítið gagngerar breytingar á þessu kerfi í ljósi þess að umhverfið er að breytast mjög mikið. Við umfjöllun um samgönguáætlun á síðasta vetri fengum við t.d. á fund til okkar bæjarfulltrúa frá Suðurnesjabæ sem kvörtuðu undan því að Vegagerðin stígur ekki inn fyrr en byggð er í beinni hættu, þannig að sú forvarnavinna sem væri eðlileg í því sveitarfélagi fær ekki stuðning ríkisins. Nágrannar þeirra í Reykjanesbæ nefndu dæmi um óveður sem olli tjóni við Ægisgötu í febrúar 2020. Vegagerðin vildi ekki taka þátt í að styrkja sjóvarnir þar vegna þess að sú byggð var varin m.a. af gamalli landfyllingu og Vegagerðin hjálpar ekki við að verja landfyllingar. Þetta er mjög þröngt sjónarhorn á þessar varnir gegn náttúruhamförum í ljósi þess að þær eru væntanlega að fara að aukast að tíðni og ákefð á næstu árum og áratugum. Sjóvarnir voru á sínum tíma sjálfstætt verkefni sett fram í þingmannafrumvarpi fyrir margt löngu og runnu síðan inn í samgönguáætlun. Allt eru þetta mannanna verk og mig langar að spyrja ráðherra hvort það sé kannski ástæða til að taka á (Forseti hringir.) þessum málaflokki með svipuðum hætti og gildir um ofanflóðavarnir eða álíka, hvort þetta sé eitthvað sem er farið að huga að, (Forseti hringir.) hvort einhver vinna eða undirbúningur á vegum ráðherra sé farinn af stað.