fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja ræðu mína á því að segja að það verður fróðlegt að sjá frumvarp hæstv. loftslags- og umhverfisráðherra sem hann gaf í skyn í seinna svari mínu til mín áðan varðandi skipulagsmál. Ég vona að ég hafi ekki verið að misskilja orð hans en það verður mjög mikilvægt mál að við tryggjum það að þjóðhagslegir hagsmunir verði látnir ráða við virkjunarframkvæmdir og mikilvæga innviði, að miðstjórnarvaldið komi þar sterkt inn.
Mig langar í þessari umferð að spyrja hæstv. ráðherra varðandi loftslagsmálin, sérstaklega rannsóknir á loftslagsmálum. Nú eru fréttir um að svokallaði blái blettur sem er á hafinu á milli Grænlands og Íslands geti haft alvarleg áhrif á loftslag og jafnvel strax næsta áratug. Versta sviðsmyndin er sú að það geti kólnað um allt að 10 gráður á Íslandi að vetrarlagi, þ.e. lóðrétt blöndun kalda og heita sjávarins á milli Íslands og Grænlands geti brostið. Er verið að gera einhverjar rannsóknir á þessu, áhrif loftslagsbreytinga á Ísland? Ég get bent á að prófessor Stefan Rahmstorf, þýskur haf- og loftslagsfræðingur, segir í fjölmiðlum á Íslandi, með leyfi forseta:
„Persónulega þá tel ég að áhættan á þessum breytingum í hafi sé svo alvarleg, sérstaklega fyrir Íslendinga og hin Norðurlöndin, að ríkisstjórn Íslands ætti umsvifalaust að grípa til aðgerða ásamt ríkisstjórnum hinna Norðurlandanna.“
Þetta segir hann í viðtali við Heimildina. Hver er prófessor Rahmstorf í hafeðlisfræði við háskólann í Potsdam? Jú, hann er einn af höfundum loftslagsskýrslu IPCC, loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2007.
Spurningin er þessi: Er verið að gera einhverjar rannsóknir hvað þetta varðar og á áhrifum loftslagsbreytinga á Ísland og hvað er verið að setja mikinn pening í það? Ég sé það ekki í frumvarpi til fjárlaga. En eitt af markmiðum í kafla um málefnasvið 17.20, umhverfismál, er (Forseti hringir.) að efla rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga. Hvað er verið að setja mikinn pening í þetta? Er verið að horfa sérstaklega (Forseti hringir.) til þess sem ég var hér að vitna til, bláa blettsins á svæðinu í kringum Ísland?