breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Frú forseti. Mig langar í fyrra andsvari mínu að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra út í aukna skattheimtu í gegnum Náttúruhamfaratryggingu. Þannig var að fyrr á þessu ári tók ríkisstjórnin 15 milljarða kr. lán úr eigin sjóðum Náttúruhamfaratryggingar til að geta farið í uppkaup á húsum í Grindavík. Nú er komið í ljós hvaða aðferð á að nota við að fylla aftur á eigin sjóð og það virðist vera að taka, eins og hæstv. ráðherra benti á, 12.500 kr. í viðbót af hverjum húsnæðiseiganda á Íslandi. Mín spurning er: Var ekki einfaldlega hægt að greiða þetta lán til baka úr ríkissjóði í stað þess að setja þetta allt yfir á eigendur húsnæðis í landinu?