155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

221. mál
[11:20]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir stuðninginn og ég er honum hjartanlega sammála um að þessi áhersla á neytendamál er löngu tímabær. Við höfum núna á síðustu árum verið að taka út neytendamálin og einmitt verið að leggja áherslu á fjármálaþjónustu og að auka upplýsingagjöf og gagnsæi. Það sem er auðvitað gerist núna er að við erum orðin svo gríðarlega tæknivædd að við getum haft miklu betri yfirsýn yfir þróun verðlags og annars slíks og það sem við höfum einmitt verið að gera, og ég ákvað að koma með hér inn í þingsal, er að á síðasta ári gáfum við út mjög merkilega skýrslu sem heitir Gjaldtaka og arðsemi viðskiptabankanna og við erum að fara að uppfæra þessa skýrslu og erum á fullu að vinna í henni þar sem við berum saman hvað fjármálaþjónustu kostar á Íslandi í samanburði við Norðurlöndin. Það er eitt og annað sem kemur þar fram, til að mynda að vaxtamunurinn er einn sá mesti. En á móti kemur að við höfum líka séð að arðsemi bankanna hér er ekki eins mikil og á Norðurlöndunum. Það breytir hins vegar ekki því að við þurfum að vita um hvað við erum að tala og ég hef einmitt sagt að það er gríðarlega mikilvægt þegar við erum á þessum tíma í baráttunni við verðbólgu að allir taki þátt í því. Það á til að mynda líka við um viðskiptabankana. Þessi nýlega vaxtahækkun sem þeir fóru í — ég tel að hún hafi verið meiri en hún hefði þurft að vera þegar við lítum á prósentuhækkun þessarar vaxtahækkunar vegna þess að alls staðar núna í samfélaginu þurfa allir að herða ólina og það á líka við um viðskiptabankana. En til þess að hafa mjög góðan grunn og skilja hvernig viðskiptabankarnir eru að haga sinni starfsemi (Forseti hringir.) þá hef ég sem viðskipta- og neytendamálaráðherra verið að leggja þessa miklu áherslu á aukna upplýsingagjöf.

Og alveg í lokin. (Forseti hringir.) Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni varðandi Leifsstöð og við þurfum að fylgjast mun betur með því.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður bæði í andsvörum og svörum.)