stefna í neytendamálum til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari tillögu um þingsályktun um stefnu í neytendamálum. Ég tel þetta vera tímabært og mikilvægt skref og það er ýmislegt í þessari þingsályktunartillögu sem ég tel til bóta og jákvætt og verður spennandi að sjá hvernig henni vindur fram. Mig langar hins vegar að nota tækifærið í þessari ræðu minni að staldra fyrst og fremst við tvennt. Í fyrsta lagi þá fagna ég því vissulega að hér er um að ræða aukna neytendavernd við fasteignakaup. Fasteignamarkaðurinn hefur eins og við vitum öll verið erfiður og þá sérstaklega fyrir þau sem eru að koma inn á markaðinn í fyrsta sinn og ég tel það virkilega til bóta að hér sé verið að skoða úrbætur sem stuðla að aukinni neytendavernd og réttaröryggi á sviði fasteignaviðskipta. Sú sem hér stendur hefur reynslu af því að standa í fasteignakaupum, bæði hér á landi og erlendis þar sem ég hef verið búsett áður, og mér hefur blöskrað skorturinn á gagnsæi og það eru ákveðnir þættir við slík viðskipti sem eru svolítið tortryggilegir hér á landi þannig að ég fagna þessu. En við í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs viljum samt að sama skapi vekja athygli á því að það er mikilvægt að okkar mati að það verði tekið tillit til annarra hópa sem ekki eru á fasteignamarkaði, sem sagt til kaups, heldur eru á leigumarkaði. Sú sem hér stendur gerir þann ákveðna fyrirvara við málið að hér er ekki rætt um leigjendur og þeirra réttarstöðu og að sama skapi er í rauninni ekkert nefnt um aðra viðkvæma hópa eins og til að mynda innflytjendur og þætti mér áhugavert að það yrði unnið lengra. Það væri vissulega áhugavert að heyra hvað hæstv. ráðherra hefur að segja um það, hvort þessir hópar ættu ekki að vera hluti af þessari stefnu. Vissulega er það þannig með neytendamálin að viðkvæmir hópar eru jaðarsettir þegar kemur að hækkun verðs og ég tala nú ekki um á fasteignamarkaðnum sem er einstaklega erfiður fyrir ákveðna hópa. Það er bara staðreynd að við lifum í samfélagi þar sem reynist erfitt fyrir mörg að komast inn á markaðinn sem eru á leigumarkaði. Mér þykir mikilvægt að við setjum einhverja varnagla í kringum þessa viðkvæmu hópa.
Annað sem ég vildi fagna og kannski ræða aðeins lengra er græn umbreyting í neytendamálum. Ég fagna því vissulega að það er lögð áhersla á sjálfbærni í þessari stefnu eða þessari þingsályktunartillögu. Hér er að einhverju leyti verið að tala inn í áherslur í Evrópusambandinu sem hafa m.a. verið á grænþvott sem er vaxandi vandamál í okkar samfélagi og víðar. Það er öllum í hag að við sem neytendur getum tekið upplýstar ákvarðanir og mörg okkar viljum taka grænar ákvarðanir en þá verða auðvitað að liggja fyrir upplýsingar, upplýsingar sem hægt er að stóla á.
Það sem ég vildi vekja athygli á í þessu samhengi, sem er eitthvað sem við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum einnig talað fyrir, eru upprunamerkingar. Ég tel þær mikilvægar þegar kemur að upplýstri neyslu. Það hafa verið tilraunaverkefni, m.a. í Frakklandi, veit ég, og víðar í Evrópusambandinu, með merkingar á kolefnisspori til að mynda, þar sem kolefnisspor vöru er merkt — það er sérstaklega átt við matvæli en getur líka átt við um aðrar vörur — þannig að neytandinn geti svolítið svart á hvítu tekið góðar ákvarðanir.
Að öðru leyti, eins og ég segi, er margt jákvætt í þessari stefnu en þetta eru tvö atriði sem mér finnst að ætti að taka til endurskoðunar. Við verðum að tryggja að það sé neytendavernd fyrir öll, að viðkvæmir hópar séu ekki undanskildir. Mér þykir það mjög mikilvægt, þó að það sé kannski viljinn með stefnunni að hún nái til allra, að sérstakir viðkvæmir hópar séu sérstaklega tilteknir. En að öðru leyti styð ég þessa stefnu og hlakka til að ræða hana meira.