155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[12:30]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það er nú langsótt hjá hv. þingmanni að vera að ræða þessi mál út frá þessum forsendum, að nefna hérna dauðarefsingar og þetta og hitt þegar það eru engin dæmi til þess, eins og hefur komið fram í umræðunni margoft, að fólk komi frá stríðshrjáðum löndum beint hingað til Íslands þannig að þetta eru óþarfaáhyggjur. En á móti má spyrja, herra forseti: Telur þingmaðurinn það vera rétt að íslenskum börnum sé stefnt í voða með það að hafa hér barnaperra, barnaníðinga (Gripið fram í.) sem hafa stöðu hælisleitenda? Þetta er svona álíka geðslega uppsett eins og hjá hv. þingmanni sem hefur beint hér spurningum að þingmönnum Flokks fólksins og Sjálfstæðisflokksins. Þetta er ekki geðslegt. Er rétt að setja málið svona upp? Eru Píratar fylgjandi því að það gangi barnaníðingar hér um sem hafa stöðu flóttamanns og það sé ekki hægt að vísa þeim úr landi? (ArnG: Hvað heldur þú?) Ég veit það ekki. (IngS: Já, já. Þeir eru hlynntir því.)

(Forseti (ÁsF): Það er einn ræðumaður í einu í salnum. Höldum þá reglu, hún er ágæt.)