155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

stjórnarsamstarfið og ástandið í þjóðfélaginu.

[15:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem hér er beint til mín. Hún er ekki, hvað skulum við segja, í minni kantinum heldur eru mörg mál reifuð hjá hv. þingmanni. Það fyrsta sem hv. þingmaður nefndi er að landið væri stjórnlaust. Það er af og frá. Landið er alls ekki stjórnlaust, hér er starfandi ríkisstjórn. Hversu mikið sem það fer í taugarnar á formanni Samfylkingarinnar er hér starfandi ríkisstjórn og það er verið að stýra landinu. Ég get líka sagt hv. þingmanni það að dómsmálaráðuneytinu er bara vel stýrt af þeirri sem hér stendur. Þar eru vissulega mörg krefjandi og knýjandi mál en það er verið að stíga inn í þau og sinna þeim.

Hér nefnir hv. þingmaður að lögreglan sé undirmönnuð. Það vill nú þannig til að átak hefur verið í gangi síðustu misserin til að fjölga lögreglumönnum og ríkisstjórnin hefur sett aukið fjármagn einmitt til þess.

Hér nefnir hv. þingmaður að mansalsmál séu ekki skoðuð. Nú fyrr á þessu ári kom til kasta lögreglunnar stærsta mansalsmál sem nokkurn tímann hefur komið á borð hennar áður og er í rannsókn og sú rannsókn gengur vel. Það er verið að sinna þeim málaflokki. Einnig nefnir hv. þingmaður og formaður Samfylkingarinnar að Landhelgisgæslan sé í fjársvelti. Ég hef sem ráðherra vakið athygli á því að það þurfi að skilgreina betur þá þjónustu sem Landhelgisgæslan á að sinna og ég er þakklát þinginu fyrir það að í fjármálaáætlun höfum við sett 700 milljónir á ári til viðbótar í rekstur Gæslunnar. (Forseti hringir.) Ég gæti talið fleira upp en ég geri það í seinna andsvari mínu.