155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

rannsókn á ólöglegu samráði skipafélaganna.

[15:26]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er gott að það er verið að taka á þjófnaði í búðum. Það þarf að taka hart á glæpum í samfélaginu, bara þannig að það sé alveg skýrt. En spurning mín til ráðherra var sú: Hvernig stendur á því að það er ekki staðinn nægilegur vörður um ákæruvaldið þannig að það geti klárað rannsókn á einu stærsta meinta samkeppnisbroti í samfélaginu, sem hefur hugsanlega í för með sér 62 milljarða samfélagslegan kostnað? Svo er verið að segja að það sé verið að standa vörð um ákæruvaldið. Það er verið að draga tennurnar úr ákæruvaldinu, úr dómstólnum, úr lögreglu en auðvitað miðað við orð ráðherra þá velti ég fyrir mér hvort þetta sé ekki einmitt bara viðhorf ríkisstjórnarinnar gagnvart samkeppni, gagnvart neytendum og við erum búin að sjá það trekk í trekk á þessu kjörtímabili. Það eru sérlög frá samkeppnislögum til að mylja undir fákeppni og hækka vöruverð til neytenda. Við erum að sjá það ítrekað hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fer alltaf í Samkeppniseftirlitið, þegar Samkeppniseftirlitið fær m.a. á Norðurlöndunum stuðning frá öllum þingum þar, frá öllum atvinnurekendum. Atvinnulífið á Norðurlöndunum stendur með Samkeppniseftirlitinu. Svo núna á ekki að klára rannsókn á þessum meintu, stóru samkeppnisbrotum. Þess vegna velti ég fyrir mér: Er verið að standa vörð um ákæruvaldið? (Forseti hringir.) Mér sýnist það ekki vera, eða er einfaldlega verið að draga tennurnar úr allri samkeppni hér á Íslandi? (Forseti hringir.) Og þá er nú bleik brugðið.