almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa um þetta mörg orð en það blasir við að þetta er mál sem við þurfum að laga þótt fyrr hefði verið og hér hefur verið hoggið þar er hlífa skyldi. Hér er nákvæmlega sá þjóðfélagshópur undir sem á ekki að þjarma að í þessu árferði, í þessum vöxtum og þessum verðtryggingum sem bitna á öllum en mest á þeim sem eru fátækastir. Ég hef trú á því að með lempni og hóflegum þrýstingi á þá sem fara með völdin í landinu sé hægt að leita samstarfs um að laga þetta og færa til þess vegar sem þetta mál felur í sér sem hér er lagt fram. Það blasir algerlega við að einhvers staðar höfum við farið út af brautinni í þessu. Það er einhvers konar skortur á rýningu og greiningu á þeim raunverulega grafalvarlega veruleika sem við blasir. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það en ég ætla að reyna að beita mér beint í eyrun á þeim sem raunverulega munu hafa það á valdi sínu að bæta hér úr.