155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Fyrsti vetrardagur er á laugardaginn. Þótt haustið hafi verið milt eru veðurspárnar farnar að boða breytta tíma, þótt vonandi verði veturinn mildur og miskunnsamur. Okkur hefur auðnast að byggja upp á köflum ágætt vegakerfi um landið. Þjóðvegakerfið á Íslandi er um 13.000 km og Norðvesturkjördæmi er með lengsta vegakerfið eða um 5.000 km. Það er mikil umferð um vegi landsins allt árið og vetrarþjónusta á vegum landsins er því alltaf að verða mikilvægari. Í dag eru allt aðrar aðstæður en voru hér um aldamótin. Á þeim tíma var samfélagsgerðin önnur. Þá var innan hvers byggðarlags eitt samfélag þar sem íbúar sóttu sína vinnu, skóla, heilsugæslu og félagslíf innan byggðarlagsins. Í dag eru landfræðileg mörk byggðarlaganna og samfélaganna mun stærri, atvinnusóknarsvæði eru stöðugt að stækka, fólk sækir vinnu lengra, keyrir börnin í skólann og jafnvel í leikskóla um langan veg og þjónustan færist svo sífellt á færri staði.

Við tölum um kostnað við vetrarþjónustu og að kostnaðurinn fari vaxandi. 5–6 milljarðar kr. er há tala og vissulega erfitt að áætla þennan kostnað. Á meðan við höfum sett okkur markmið og vetrarþjónustureglur þá getur hann sveiflast. En hver er ávinningurinn? Við getum litið á vegakerfið sem æðakerfi landsins sem ber næringu og orku til allra byggðarlaga landsins. Samfélagið er undir. Helstu stoðir íslensks efnahagslífs renna líka eftir vegakerfi landsins; ferðaþjónusta, sjávarútvegur og fiskeldi. Allar tafir á því rennsli eru hreint tekjutap fyrir þjóðina því þau byggðarlög sem búa ekki við öruggar samgöngur allt árið um kring missa afl.

Nú er veturinn á næsta leiti. Það er skoðun mín, virðulegi forseti, að þegar við áætlum fjármagn í vetrarþjónustu verðum við að taka inn þann ávinning sem sú þjónusta skilar. Ef það er gert þá verðum við alltaf í ágóða.